Slöngusmíði er okkar fag

Ein af grunnstoðum í þjónustu Straumrásar er smíði á vökvaslöngum og sala á tilheyrandi lagnaefni (fittings), en fyrirtækið hefur sérhæft sig í slöngusmíði allt frá stofnun.
Fyrirtækið er vel tækjum búið til að smíða, skafa og pressa slöngur eftir óskum hvers og eins. Við leggjum mikinn metnað í að eiga jafnan á lager allan helsta fittings.
Við erum í samvinnu við leiðandi birgja og fylgjum þeirri þróun sem á sér stað á þessum vettvangi.
Markmiðið er að allir afgreiðslumenn okkar hafi þjálfun og getu til að smíða og pressa slöngur hratt og örugglega og oftast er hægt að leysa þessi verkefni á meðan viðskiptavinurinn bíður.

Fyrir ýmis stærri verkefni eins og jarðgangagerð og jarðborun höfum við í samvinnu við Landvélar útbúið færanlegar gámaeiningar með slöngupressu, slöngum og lagnaefni, sem fullbúið slönguverkstæði á verkstað.