ABUS er þýskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur skapað sér sérstöðu í smíði og hönnun á brúkrönum í öllum stærðum og gerðum. Fagmennskan er í hvívetna í fyrirrúmi, í hönnun, í smíði og ráðgjöf og lausnir til staða í flest þau verkefni sem upp koma, staðlaðar eða sérsmíðaðar. Samstarfsaðili Landvéla er AB – Kransystem ApS í Danmörku en þeir hafa yfirgripsmikla þekkingu á sínu sviði og þekkja jafnframt vel kröfur íslenska markaðarins.
ABUS leggur mikið upp úr gæðum og áreiðanleika og bíður allt að 4ra ára ábyrgð á allri sinni eigin smíði og hönnun, þar með talið íhlutir eins og statorar, mótorar, hjól o.fl.. Slithlutir eins og vír, keðjur, keðjusleðar og bremsuhlutir eru með 2ja ára ábyrgð. Fjarstýringar og annar búnaður framleiddur af þriðja aðila er svo með verksmiðjuábyrgð skv. skilmálum viðkomandi framleiðanda.