Tricoflex slöngur
Franska fyrirtækið Tricoflex sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á slöngum, börkum og rörum úr plastefnum. Þeir hafa sína eigin efnablöndu með PVC sem grunnhráefni og bjóða upp á fjölbreytt úrval af slöngum og börkum, fyrir matvæla- og drykkjaframleiðslu, efnaiðnað, landbúnað o.fl.
Á seinni árum hefur Tricoflex jafnt og þétt bætt nýjungum við vörulínu sína og sem fyrr eingöngu úr plastefnum. Tricoflex framleiðir sína vöru á lager og því er afgreiðslufrestur styttri en hjá mörgum keppinautum.
Þekktasta slanga Tricoflex er án efa gula vatnsslangan sem ber nafn fyrirtækisins en hún er almennt sú vatnsslanga sem allir miða sig við enda víða í notkun. Þá þekkja grillarar landsins „orange“ gasslönguna sem tengir saman grill og gaskút, en þessi slanga er oftar en ekki framleidd af Tricoflex og ber heitið Prop-Tress.
Hér á heimasíðunni má finna upplýsingar um þær Tricoflex slöngur og barka sem eru hvað mest notaðar hér á landi og Landvélar leitast við að hafa á lager. Úrvalið er þó mun meira og við sérpöntum slöngur og barka í sérhæfðari verkefni. Á heimasíðu Tricoflex, http://www.tricoflex.com/, má nálgast frekari upplýsingar frá framleiðanda.
Vatnsslöngur
Loft- og gasslöngur
Loft- og gasslöngur
Olíu- og efnaslöngur
Loft- og gasslöngur